Sleikjuhyggja: Sú trú að einungis sé hægt þekkja hið rétta eðli hlutanna með því að sleikja þá. Upphafsmaður S. var sófaheimspekingurinn Anaxímandros. Frumspekilegum stoðum var þó ekki rennt undir S. fyrr en höfuðrit Kants, Frumspekilegur grundvöllur siðferðilegrar sleikjuhyggju, kom út. Ein af afleiðingum S. er sú að þar sem ekki er hægt að sleikja sig allan er í raun ekki hægt að þekkja sjálfan sig að fullu.
